Ætla að taka jólin með stæl

Sæl og blessuð, þar sem ég var ekkert sérstaklega upplífgandi í síðustu færslu þá kem ég með planið mitt.

Ég ætla að kaupa tilbúið deig frá Jóa Fel og familian gerir þetta saman.  semja jólakortalistann og senda nokkru velvöldu fólki kort.

Þannig að kortin og kökurnar eru frá.  Jólagjafir á leiðinni. svo allt er undir control. Police

Annars var ég gjörsamlega dolfallin yfir sjónvarpsþætti áðan á 2sirkus, Most shocking heitir þátturinn, ég komst aldrei inn í eldhús því ég stóð upp, horfandi á skjáinn, jesúaði mig jiiiiiaði mikið og allt á innsogin tók 2 skref og sat svo bara með hökuna í fanginu allan þáttinn.

Er með leiðinlega kvefpest og skapið eftir því.  Um daginn langaði t.d. sérstaklega til að komast i tæri við þá vísindamenn sem segja að fyrirtíðaspenna sé ekki til!!!!!!!  Eru þeir með leg? Tútna þeir út vegna eggloss, hormónaójafnvæginu og blæðinga? Og svo annað, af hverju í //&%$ (blót) getur f'olk ekki notað stefnuljós? eða biðjast afsökunar ef það rekst utan í mann og af hverju borgarðu skatt allt þitt líf og endar svo á að borga erfðafjárskatt EFTIR að þú deyrð?!!Angry

Jæja best að fara að sofa og ef engan skyldi gruna það þá er ég skólabókardæmi fyrir PMS núna yfirleitt er ég hvers manns hugljúfiHalo

Góða nótt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband