Janet Jackson og ég.

Hæ hæ! Það var myndband í tv áðan með janet jackson söngkonu.  Yngri sonur minn, tæplega 5 ára, horfði í aðdáun á þessa fögru veru og sagði svo:  Ég vil eiga þessa mömmu!  ............ooog líka þig. Nú segi ég, er ég lík henni (alltaf að halda í vonina) Svarið kom skjótt:  Nei.

Ef MJJ bregður þá kemur alltaf sami frasinn:  Vá! Mér brá mér!

Einn morguninn lágum við upp í rúmi, hjónin (undarlegt en satt) og yngsta trippið.  Feðgarnir voru að spjalla þegar allt í einu gellur í örverpinu:  Þú ert með hár í nefinu! Já segir pabbinn.  Þá bætti MJJ við: Fólk er með hár í nefinu en krakkar með hor! Útrætt mál.

 Það eru 2 gelgjur hérna á heimilinu og ástandið eftir því.  Stundum þegar fýla/hormónagos/drami er í gangi þá hef ég stundum sagt:  Hvaða attitude er þetta?  og dóttir mín náði ekki alveg orðinu og skellti á bróður sinn þennan eldri:  Vááá! (sagt með tilheyrandi fýlutón unglingsins)einn með arkitekt (svo skyldi hún ekkert í hlátrasköllunum)

Jæja þar kom að því.  Það var minnst á beinþynningu við mig! Ég er víst komin á "þennan aldur" ótrúlegt, mér fannst alltaf svo rosalega langt þangað til ég færi á "þennan aldur"! en þjálfarinn minn spurði hvort ég tæki kalk því það væri svo gott fyrir konur á mínum aldri :)

Góðar stundir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Janet Jackson kann pottþétt ekki að kýla án þess að brjóta á sér þumalinn.

Sindri Njáll (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 19:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband